LSTR1SU02 - Listir með áherslu á stuttmynd

Stuttmyndagerð

Einingafjöldi: 2
Þrep: 1
Forkröfur: Engar
Ný menntastefna er höfð til grundvallar og grunnþættir menntunar eru hafðir að leiðarljósi. Lokamarkmið áfangans er að gera stuttmynd. Fjallað verður um uppbyggingu handrita og handritsgerðar fyrir stuttmyndir. Nemendur fá leiðsögn um myndatöku, hljóðupptöku, leikmynd, búninga og klippivinnu.

Þekkingarviðmið

  • Hugtakinu stuttmynd
  • Ferli við gerð stuttmyndar
  • Tæknivinnu að baki stuttmynd
  • Handritsgerð

Leikniviðmið

  • Að skrifa handrit
  • Að meðhöndla stafræna tökuvél, myndavél eða spjaldtölvur
  • Að ná tökum á klippiforriti
  • Að gera stuttmynd

Hæfnisviðmið

  • Vinna í teymi
  • Átta sig á mikilvægi skipulagðra vinnubragða
  • Gera sér grein fyrir mikilvægi skapandi hugsunar
  • Tjá sig í gegnum stuttmynd
  • Vinna stuttmynd
Nánari upplýsingar á námskrá.is