LSTR1LM03 - Myndlist með áherslu á listaverk

Listaverk í myndlist

Einingafjöldi: 3
Þrep: 1
Forkröfur: Engar
Ný menntastefna er höfð til grundvallar og grunnþættir menntunar eru hafðir að leiðarljósi. Fjallað verður um verk þekktra listamanna, myndbyggingu, liti og stíl. Einnig verður námið tengt við vettvang og farið á listasöfn og aðrar menningartengdar stofnanir.

Þekkingarviðmið

  • Myndbyggingu listaverka
  • Stíl þekktra listaverka
  • Stefnum í listaverkum

Leikniviðmið

  • Að skoða ólík listaverk fordómalaust
  • Að þekkja ákveðnar stefnur í listaverkum
  • Að þekkja verk ákveðinna listamanna
  • Að átta sig á myndbyggingu og stíl ólíkra listaverka

Hæfnisviðmið

  • Vinna myndlistarverk í ákveðnum stíl
  • Fara á listasöfn sér til gagns og ánægju
  • Taka þátt í umræðum um stefnur og strauma í myndlist
Nánari upplýsingar á námskrá.is