LÝÐH1VA02 - Lýðheilsa með áherslu á vatnsaðlögun

Grunnatriði í vatnsaðlögun í sundlaug

Einingafjöldi: 2
Þrep: 1
Forkröfur: Engar
Ný menntastefna er höfð til grundvallar og grunnþættir menntunar eru hafðir að leiðarljósi. Nemendur gera ýmsar æfingar í vatni til þess að auka öryggi sitt.

Þekkingarviðmið

  • Styrkleikum sínum í vatninu
  • Hættum í vatni

Leikniviðmið

  • Að slaka vel á og njóta þess að vera í sundi
  • Að geta haldið höfuðréttu og höfuðstjórn
  • Að geta gert með aðstoð æfingar sem vinna gegn kreppum og aflögunum
  • Að geta staðið sjálfstætt á botni með eða án stuðnings frá bakka
  • Að geta flotið með hjálpartækjum
  • Að geta spyrnt frá bakka
  • Að geta blásið í vatn
  • Að geta farið með höfuð í kaf
  • Að geta gengið í laug með eða án aðstoðar
  • Að geta hreyft sig sjálfstætt í vatni

Hæfnisviðmið

  • Hafa öðlast aukið öryggi í vatninu
  • Útfæra það yfir á mismunandi sundaðferðir
Nánari upplýsingar á námskrá.is