SKNÁ1ST03 - Skynnám með áherslu á stærðfræði

Stærðfræðihugtök

Einingafjöldi: 3
Þrep: 1
Forkröfur: Engar
Ný menntastefna er höfð til grundvallar og grunnþættir menntunar eru hafðir að leiðarljósi. Farið verður yfir nokkur undirstöðuhugtök stærðfræðinnar á einfaldan og fjölbreyttan hátt. Byrjað er að fjalla um efnið á sjónrænan- og heyrnrænan hátt. Tekin eru fyrir grunnform og grunnhugtök eins og fyrir framan, fyrir aftan, ofan, neðan og einnig tölustafir og einfaldar reiknisaðgerðir. Viðfangsefni og mismunandi form eru skoðuð og yfirfærð á námsumhverfið.

Þekkingarviðmið

  • Að mismunandi form eru í umhverfinu
  • Að formin eru ólík og eru allsstaðar
  • Að til er fjöldi tölustafa sem tákna ákveðinn fjölda

Leikniviðmið

  • Að greina á milli forma
  • Að skoða mismunandi form
  • Að nefna mismunandi form
  • Að þekkja tölustafi
  • Að kynnast mismunandi reikniaðferðum

Hæfnisviðmið

  • Taka þátt í umræðum um form í náttúrunni
  • Reikna einföld dæmi úr daglegu lífi
Nánari upplýsingar á námskrá.is