HBFR1PH02 - Heilbrigðisfræði með áherslu á persónulegt hreinlæti

Persónulegt hreinlæti

Einingafjöldi: 2
Þrep: 1
Forkröfur: Engar
Ný menntastefna er höfð til grundvallar og grunnþættir menntunar eru hafðir að leiðarljósi. Lögð er áhersla á að nemandinn öðlist grunnþekkingu í heilbrigðisfræði með áherslu á persónulegt hreinlæti. Unnið verður með þætti sem auka færni nemandans í að taka ábyrgð á eigin líkama og líferni.

Þekkingarviðmið

  • Persónulegu hreinlæti og miklvægi þess í daglegu lífi
  • Samspili hreinlætis og líðan almennt
  • Hvað felst í því að taka ábyrgð á eigin hreinlæti og snyrtimennsku
  • Áhrifum lifnaðarhátta á líðan
  • Sjálfum sér sem kynveru og ábyrgðinni sem því fylgir

Leikniviðmið

  • Stunda ábyrga lífshætti
  • Þekkja helstu þætti er varða persónulegt heilbrigði
  • Þekkja og greina hollar lífsvenjur og næringu
  • Þekkja eigin líkama og taka mark á skilaboðum frá honum
  • Að sinna eigin hreinlæti
  • Viðhafa ábyrga kynhegðun

Hæfnisviðmið

  • Að bera ábyrgð á eigin lífi
  • Viðhafa persónulegt hreinlæti
  • Viðhalda almennri vellíðan
  • Viðhalda og bæta eigin heilsu
  • Stunda hollt líferni
  • Stunda ábyrga kynhegðun
Nánari upplýsingar á námskrá.is