ÍSLE1TL05 - Íslenska með áherslu á læsi í víðu samhengi

Læsi, ritun, tjáning

Einingafjöldi: 5
Þrep: 1
Forkröfur: Engar
Ný menntastefna er höfð til grundvallar og grunnþættir menntunar eru hafðir að leiðarljósi. Áhersla er á læsi í víðu samhengi, s.s. á bókstafi og hljóð, umhverfi, tákn, reglur, samskiptamiðla, hugtök, tjáskipti, tilfinningar, lesefni og samskipti. Vinnuferlið miðast við að efla færni og sjálfsmynd nemenda til að takast á við lífið í framtíðinni, m.a. að efla samskiptalæsi og umhverfislæsi í þeim tilgangi að þeir verði virkari og hæfari þátttakendur í jafnréttis- og lýðræðissamfélagi. Notast verður við aldursmiðaðar bókmenntir, sjálfshjálparbækur, íslenska tónlist og fjölbreytt verkefni.

Þekkingarviðmið

  • Hugtakinu læsi í víðu samhengi
  • Mikilvægi tjáningar og skynjunar
  • Ýmsum aldurs- og áhugamiðuðum hugtökum
  • Mismunandi tjáskiptaleiðum
  • Mikilvægi lesturs og bókmennta

Leikniviðmið

  • Nýta sér upplýsingar á stafrænum miðlum
  • Tjá sig með fjölbreyttum leiðum
  • Vinna með texta sem hann hefur lesið og/eða hlustað á
  • Taka þátt í umræðum
  • Nýta sér leiðréttingarforrit og ýmiss hjálpargögn til verkefnavinnu, s.s. talgervla og tjáskiptaforrit
  • Lesa upp og/eða tjá sig fyrir framan aðra
  • Lesa og/eða hlusta á texta sér til gagns og gleði

Hæfnisviðmið

  • Nýta sér læsi í víðu samhengi
  • Auka sjálfstraust sitt og trú á eigin málfærni í tjáningu og/eða ritun
  • Hlusta á sjónarmið annarra af víðsýni
  • Lesa í og/eða nýta sér upplýsingar sem koma fram í útvarpi, sjónvarpi og í netmiðlum
  • Lesa í umhverfi, samskipti, tilfinningar og reglur í þeim tilgangi að átta sig á hvað er viðeigandi hverju sinni
  • Tjá eigin skoðanir
  • Lesa í ýmsa texta, s.s. bækur, fréttir og fræðigreinar með eða án aðstoðar
Nánari upplýsingar á námskrá.is