LÍFS1KF05 - Lífsleikni með áherslu á kynfræðslu

Kynfræðsla

Einingafjöldi: 5
Þrep: 1
Forkröfur: Engar
Ný menntastefna er höfð til grundvallar og grunnþættir menntunar eru hafðir að leiðarljósi. Áhersla er á kynfræðslu í þeim tilgangi að nemendur viti hvað felst í kynheilbrigði og að þeir öðlist jákvæðan skilning á kynlífi og öðlist hæfni til að viðhalda eigin kynheilbrigði. Stuðlað verður að því að nemendur læri að taka ábyrgar ákvarðanir á líðandi stundu og í framtíðinni.

Þekkingarviðmið

  • Vexti og þroska líkamans
  • Hugtökum um líkamshluta og kynlíf
  • Að sjónarhorn allra er jafn mikilvægt
  • Mikilvægi kynheilbrigðis
  • Algengum kynsjúkdómum og getnaðarvörnum

Leikniviðmið

  • Íhuga og kanna eigið viðhorf til kynlífs
  • Tjá skoðanir sínar
  • Þekkja eigin líkama
  • Eiga viðeigandi samskipti, sem einkennast af virðingu, við einstaklinga af báðum kynjum

Hæfnisviðmið

  • Taka ígrundaðar ákvarðanir varðandi kynheilbrigði sitt
  • Spyrja spurninga og hlusta á sjónarmið annarra af víðsýni
  • Auka sjálfstæði sitt og trú á sjálfum sér
  • Láta skoðanir sínar í ljós
  • Vera meðvitaður um að kynferðisleg tjáning getur verið mismunandi
Nánari upplýsingar á námskrá.is