LÍFS1SB05 - Lífsleikni með áherslu á sjálfbærni í víðu samhengi

Sjálfbærni í víðu samhengi

Einingafjöldi: 5
Þrep: 1
Forkröfur: Engar
Ný menntastefna er höfð til grundvallar og grunnþættir menntunar eru hafðir að leiðarljósi. Áhersla er á sjálfbærni og undirbúning fyrir fullorðinsárin. Farið verður yfir fjölbreytta sýn á aðstæður og umhverfi ungs fólks í dag og hvernig hugtakið sjálfbærni kemur fyrir í daglegu lífi. Áhersla er á að námið verði sjálfbært í þeirri merkingu að það eigi eftir að nýtast nemendum í framtíðinni og færa þá nær raunveruleika lífsins í gegnum fræðslu og umfjöllun/upplifun.

Þekkingarviðmið

  • Hugtakinu sjálfbærni
  • Hugtökum sem snerta umhverfismál og umhverfisvitund
  • Að sérstaða manna meðal lífvera er margvísleg
  • Fjölbreytileika lífs
  • Mismunandi samskiptareglum
  • Mikilvægi tjáningar og hlustunar
  • Ýmsum aldurs- og áhugamiðuðum hugtökum

Leikniviðmið

  • Skoða eigin neysluvenjur og áhrif þeirra á eigin velferð og umhverfi
  • Nálgast viðfangsefni á fjölbreyttan hátt
  • Átta sig á fjölbreytileika samfélagsins og mismunandi menningarheimum
  • Taka þátt í umræðum
  • Afla sér upplýsinga um lýðheilsu
  • Nýta sér reynslu annarra til að takast á við sambærilegar aðstæður

Hæfnisviðmið

  • Skilja þá hugsun sem felst í hugtakinu sjálfbærni
  • Virða fjölbreytileika náttúru, umhverfis og fólks
  • Þekkja styrkleika sína og nýta þá á jákvæðan og uppbyggilegan hátt
  • Hlusta á sjónarmið annarra af víðsýni
Nánari upplýsingar á námskrá.is