UPPT1SK04 - Upplýsingatækni með áherslu á sköpun

Sköpun

Einingafjöldi: 4
Þrep: 1
Unnið er með ýmis tölvuforrit með sköpun að markmiði. Nemendur vinna með ljósmyndir, teikningar, form og liti. Þeir eru hvattir til að gefa hugmyndafluginu lausan tauminn og fá tækifæri til að skapa tónlist, rit- og ljóð.

Þekkingarviðmið

  • Að sköpunin felst í vinnuferlinu ekki síður en afrakstrinum
  • Mikilvægi þess að nota ímyndunaraflið í sköpunarferlinu
  • Að hægt er að skapa á ýmsa vegu

Leikniviðmið

  • Að fara mismunandi leiðir í sköpunarferlinu
  • Að átta sig á því að hugmyndir annarra eru oft ólíkar eigin hugmyndum

Hæfnisviðmið

  • Prófa sig áfram og vinna að sköpun sinni á fjölbreyttan hátt
  • Kynnast tölvuforritum sem nýta má við sköpun af ýmsu tagi
  • Efla sjálfstraust sitt og trú á eigin færni
  • Kynna verk sín fyrir öðrum
Nánari upplýsingar á námskrá.is