ENSK1TL04 - Enska með áherslu á tónlist

lagatextar, tónlist

Einingafjöldi: 4
Þrep: 1
Forkröfur: Engar
Ný menntastefna er höfð til grundvallar og grunnþættir menntunar eru hafðir að leiðarljósi. Unnið verður með ensku í gegnum tónlist og dægurlagatexta. Áhersla verður á klassíska, popp- og rokktónlist í bland við það sem er vinsælast hverju sinni. Nemendur verða hvattir til að velta fyrir sér hvað textaskáldið er að segja í textunum. Nemendur bæta þannig jafnt og þétt við orðaforða og hugtakaskilning sinn.

Þekkingarviðmið

  • Hvaða sögu textaskáldin eru að miðla hverju sinni
  • Að oft má tengja saman áhugamál og nám
  • Sköpun í formi ljóðagerðar og textasmíðar

Leikniviðmið

  • Hlusta á og vinna með mismunandi texta og ljóð
  • Virða tónlistarsmekk annarra
  • Átta sig á fjölbreytileika samfélagsins og mismunandi tegund tónlistar
  • Taka þátt í umræðum

Hæfnisviðmið

  • Efla orðaforða sinn
  • Átta sig á að margir textar hafa ákveðinn boðskap
  • Spyrja spurninga og hlusta á það sem aðrir hafa áhuga á
  • Láta skoðanir sínar í ljós
Nánari upplýsingar á námskrá.is