ENSK1ÞS04 - Enska með áherslu á þjónustustörf

Þjónustustörf

Einingafjöldi: 4
Þrep: 1
Forkröfur: Engar
Ný menntastefna er höfð til grundvallar og grunnþættir menntunar eru hafðir að leiðarljósi. Orðaforði sem tengist þjónustustörfum er hafður að leiðarljósi í þeim tilgangi að styrkja þá nemendur sem vinna eða munu hugsanlega vinna við þjónustustörf í framtíðinni. Brotið verður upp hefðbundið mynstur í enskukennslunni með áherslu á uppgötvun, gagnrýna hugsun, umræður og ígrundun ásamt hefðbundnum kennsluaðferðum. Unnið verður með ýmis hugtök sem tengjast þjónustu og þjónustustörfum á fjölbreyttan hátt.

Þekkingarviðmið

  • Að enskukennsla getur verið fjölbreytt og áhugamiðuð
  • Fjölbreyttum hugtökum sem tengjast þjónustustörfum
  • Mikilvægi þess að geta tjáð sig á enskri tungu þegar unnið er við þjónustustörf
  • Að vinnuferlið er ekki síður mikilvægt en afraksturinn
  • Að hægt er að leita leiða á fjölbreyttan hátt
  • Að sjónarhorn allra er jafnt mikilvægt

Leikniviðmið

  • Að bjarga sér í ensku við ýmis þjónustustörf
  • Að koma skoðunum sínum á framfæri
  • Nálgast viðfangsefnin á mismunandi hátt

Hæfnisviðmið

  • Eiga samskipti við enskumælandi einstaklinga í gegnum ýmis þjónustustörf
  • Nýta sér fjölbreyttar nálganir í námsferlinu
  • Lesa í og/eða nýta sér mismunandi upplýsingar úr umhverfinu
  • Hlusta á sjónarmið annarra af víðsýni
  • Leggja mat á árangur sinn og möguleika sína
  • Hlusta á aðra og tjá eigin skoðanir á ensku
  • Leita nýrra leiða og mynda sér sjálfstæðar skoðanir
Nánari upplýsingar á námskrá.is