STAR1RS05 - Starfsnám með áherslu á réttindi og skyldur

Réttindi og skyldur

Einingafjöldi: 5
Þrep: 1
Forkröfur: Engar
Ný menntastefna er höfð til grundvallar og grunnþættir menntunar eru hafðir að leiðarljósi. Nemendur þjálfast í að taka þátt í atvinnulífinu og fá fræðslu um réttindi og skyldur launþega. Kennsla fer fram í skóla og úti á vinnustöðum. Með því að tengja námið við vinnustaði öðlast nemendur oft aðra sýn á námið í skólanum og tilgangur námsins verður skýrari.

Þekkingarviðmið

  • Fjölbreyttum vinnustöðum
  • Að launakjör eru mismunandi eftir starfshlutfalli og ráðningarsamningum
  • Mikilvægi þess að fara út á vinnumarkaðinn að skóla loknum
  • Mikilvægi þess að öllum réttindum fylgja ákveðnar skyldur

Leikniviðmið

  • Nálgast launaseðla í gegnum tölvu, s.s. í heimabanka
  • Lesa launaseðla
  • Fylgja þeim skyldum sem krafa er gerð um á vinnustöðum
  • Vera meðvitaður um eigin réttindi á vinnumarkaði

Hæfnisviðmið

  • Taka þátt í atvinnulífinu
  • Hafa yfirsýn yfir réttindi og skyldur launþega á Íslandi
  • Geta nýtt sér upplýsingar sem koma fram á launaseðli
  • Taka þátt í umræðum um réttindi og skyldur á vinnustöðum
Nánari upplýsingar á námskrá.is