Fagstjórar
Starfslýsingar fagstjóra
Fagstjórar, bóklegar greinar:
- Tryggja samráð og samvinnu milli kennara fagsins.
- Velja kennslubækur í samráði við kennara fagsins.
- Kalla saman fundi og stjórna þeim.
- Vinna tillögur að kennsluskiptingu í samráði við sviðsstjóra.
- Sjá um faglegt samstarf við aðra skóla.
Fagstjórar, iðnnám:
- Sjá um að tengja skólann atvinnulífi þannig að nemendur fái upplýsingar um nýjungar í faggrein.
- Sjá um faglegt samstarf við aðra skóla.
- Sjá um efniskaup og umsjón með verkstæðum.
- Vinna tillögur að kennsluskiptingu í samráði við sviðsstjóra.
- Sjá um viðhald á kennslubúnaði og setja fram tillögur með kostnaðaráætlun að endurnýjun.
Fagstjóri, sjúkraliðabraut:
- Sér um að tengja skólann atvinnulífi þannig að nemendur fái upplýsingar um nýjungar í faggrein.
- Sér um faglegt samstarf við aðra skóla.
- Sér um efniskaup og umsjón með sérstofu.
- Sér um viðhald á kennslubúnaði og setja fram tillögur með kostnaðaráætlun að endurnýjun.
- Skipuleggur starfsþjálfun nemenda og eftirlit með starfsnámi á sjúkrastofnunum.

