Samstarf
Samstarf
Samstarf heimila og skóla
Skólinn leggur ríka áherslu á að góð samskipti séu milli heimila og skóla.
- Til að kynna foreldrum nýnema skólastarfið er haldinn fundur í upphafi skólaárs þar sem stjórnendur og umsjónarkennarar eru kynntir.
- Allir kennarar skólans hafa viðtalstíma sem foreldrar geta nýtt sér til að leita upplýsinga.
- Til að kynna skólann er Opinn dagur þar sem foreldrar og íbúar svæðisins eru boðnir velkomnir inn í skólann til að kynna sér skólann og þá starfsemi sem þar fer fram. Opinn dagur er að jafnaði haldinn á haustönn annað hvert ár.
Helsta upplýsingaveita skólans er vefur Fjölbrautaskóla Suðurnesja (www.fss.is). Þar er að finna greinargóðar upplýsingar um skólann og starfsemi hans, námsframboð og reglur og hagnýtar upplýsingar um nám í skólanum. Samkvæmt lögum um framhaldsskóla er hverjum framhaldsskóla skylt að gefa út skólanámskrá með upplýsingum um skólann og námsframboð. FS-vefurinn gegnir hlutverki skólanámskrár Fjölbrautaskóla Suðurnesja.

