Jafnréttisáætlun
Jafnréttisáætlun Fjölbrautaskóla Suðurnesja
Jafnréttisáætlun Fjölbrautaskóla Suðurnesja
Góð menntun eflir virðingu, víðsýni og umburðarlyndi og þar með jafnrétti. Markmiðið með jafnréttisáætlun Fjölbrautaskóla Suðurnesja er að stuðla að jafnrétti kynjanna, jafnri stöðu og virðingu kvenna og karla innan skólans. Ennfremur að minna stjórnendur og starfslið skólans á mikilvægi þess að allir fái notið sín án tillits til kynferðis, litarháttar, trúarskoðana, kynhneigðar, þjóðernis eða annarra þátta. Fjölbrautaskóli Suðurnesja telur mikilvægt að nýta til jafns þá auðlegð sem felst í menntun, reynslu og viðhorfum kvenna og karla. Í öllu starfi skólans verði unnið gegn viðhorfum sem leiða til aðstöðumunar kvenna og karla sem og gegn þeim neikvæðu viðhorfum sem beinast að mismunandi litarhætti og minnihlutahópum. Jafnréttismál og leiðir til að vinna að jafnri stöðu kynjanna verði einnig virkur þáttur í starfsmannastefnu skólans.
Í 23. grein laga nr. 10/2008 um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla segir að kynjum skuli ekki mismunað í skólum og öðrum uppeldisstofnunum og skuli þess gætt í námi og kennslu, starfsháttum og daglegri umgengni við nemendur. Kveðið er á um fræðslu um jafnréttismál á öllum skólastigum og að leitast skuli við að draga úr kynskiptu námsvali. Í jafnréttislögunum er ennfremur kveðið á um að í náms- og starfsfræðslu og við ráðgjöf í skólum skuli leitast við að kynna bæði piltum og stúlkum störf sem hingað til hefur verið litið á sem hefðbundin kvenna- eða karlastörf.
Fjölbrautaskóli Suðurnesja leggur áherslu á eftirfarandi:
Samvinnu og sjálfstæði kynja
Í skólastarfinu skal lögð áhersla á að efla sjálfstæði og sjálfsvirðingu beggja kynja. Áhersla er á að nemendur njóti alhliða menntunar og fái hvatningu til náms í samræmi við þroska og áhuga hvers og eins innan ramma námsskrár. Leitast verður við að hafa kennslu- og námsgögn þannig að kynjum sé ekki mismunað á nokkurn hátt. Rannsóknir sýna að munur er á piltum og stúlkum hvað varðar áhuga og hæfni á flestum viðfangsefnum skólans. Mikilvægt er að kennarar séu meðvitaðir um þessa þætti og taki tillit til þeirra í daglegu starfi en lögð skal áhersla á eiginleika hvers einstaklings í hópnum. Mikilvægt er að þjálfa þætti eins og samvinnuhæfni og tillitssemi til að auðvelda unglingunum að starfa í blönduðum hópum.
Launajafnrétti
Launaákvarðanir byggjast á kjarasamningum og lögum óháð kynferði og skal þess gætt að kynjum sé ekki mismunað. Konum og körlum skulu greidd jöfn laun og skulu njóta sömu kjara fyrir jafnverðmæt og sambærileg störf og hvers konar frekari þóknun, beina og óbeina, hvort heldur er með hlunnindagreiðslum eða öðrum hætti. Einnig skulu þau njóta sömu kjara hvað varðar lífeyris-, orlofs- og veikindarétt og hvers konar önnur starfskjör eða réttindi sem metin verða til fjár samkvæmt lögum nr. 10/2008.
Auglýsingar
Í auglýsingum eru störf ókyngreind og þess gætt að hafa bæði kynin í huga við gerð auglýsinga.
Upplýsingagjöf
Þegar birtar eru tölfræðilegar upplýsingar á vegum skólans skulu þær greindar eftir kyni, eftir því sem við á.
Stöðuveitingar og störf
Jafnréttissjónarmið verði metin til jafns við önnur mikilvæg sjónarmið sem ráða við stöðuveitingar. Stefnt er að því að halda sem jöfnustu hlutfalli kynjanna í hinum ýmsu störfum innan skólans. Þess verði gætt að einstaklingum sé ekki mismunað vegna kynferðis við úthlutun verkefna, tilfærslu í störfum, tækifæra til að axla ábyrgð og framgang í störfum.
Starfsþjálfun og endurmenntun
Tryggt verði að konur og karlar njóti sömu möguleika til endurmenntunar og starfsþjálfunar og til að sækja námskeið er haldin eru til að auka hæfni í starfi eða undirbúnings öðrum störfum.
Samræming fjölskyldu- og atvinnulífs
Leitast er við að gera starfsmönnum kleift að samræma starfsskyldur sínar og skyldur gagnvart fjölskyldu með sveigjanlegum vinnutíma, hlutastörfum eða annarri vinnuhagræðingu, eftir því sem við verður komið, einkum hjá foreldrum ungra barna.
Starfsandi og líðan starfsmanna
Lögð er áhersla á góða líðan starfsmanna og góðan starfsanda í skólanum. Allir starfsmenn eiga rétt á því að komið sé fram við þá af virðingu og sæti ekki kynferðislegri áreitni, einelti né öðru ofbeldi. Kynferðisleg áreitni er kynferðisleg hegðun sem er ósanngjörn og/eða móðgandi og í óþökk þess sem fyrir henni verður, hefur áhrif á sjálfsvirðingu þess eða þeirra sem fyrir henni verða og er haldið áfram þrátt fyrir að gefið sé skýrt í skyn að hegðunin sé óvelkomin. Kynferðisleg áreitni getur verið líkamleg, orðbundin eða táknræn. Einelti er endurtekin áreitni eða ofbeldi, líkamlegt eða andlegt, sem stýrt er af einstaklingi eða hópi og beinist að öðrum. Sjá áætlun Fjölbrautaskóla Suðurnesja um viðbrögð við einelti.
Jafnréttisáætlun Fjölbrautaskóla Suðurnesja skal endurskoðuð og metin á tveggja ára fresti.
Síðast endurskoðað í mars 2009.

