Áætlun gegn einelti

Áætlun Fjölbrautaskóla Suðurnesja um viðbrögð við einelti

Stefnuyfirlýsing
Skólayfirvöld, starfsfólk og nemendur Fjölbrautaskóla Suðurnesja lýsa því yfir að hvorki einelti né annað ofbeldi verður liðið í skólanum. Leitað verður allra ráða til að fyrirbyggja einelti og ofbeldi og til að leysa þau mál sem upp koma á farsælan hátt. Fjölbrautaskóli Suðurnesja á að vera öruggur vinnustaður þar sem starfið mótast af virðingu og samvinnu allra til að góður árangur náist í skólastarfinu.

Skilgreining á einelti
Einelti er endurtekin áreitni eða ofbeldi, líkamlegt eða andlegt, sem stýrt er af einstaklingi eða hópi og beinist að öðrum. Andlegt einelti felst í stríðni, útilokun, hótunum eða höfnun. Líkamlegt einelti getur verið barsmíðar, spörk, hrindingar eða meiðingar af öðru tagi. Munnlegt ofbeldi getur falist í uppnefnum, stríðni, hvísli um fórnarlambið eða upplognum sögum. Efnislegt ofbeldi er þegar eigum er stolið eða eyðilagðar. Með félagslegu ofbeldi er fórnarlambið skilið út undan eða þarf að þola svipbrigði, augngotur eða þögn. Í rafrænu ofbeldi felast m.a. illkvittin SMS, vefpóstur, blogg eða önnur skilaboð, fórnarlamb er útskúfað frá hópum á netsíðu eða tekið út af vinalista og myndum eða myndböndum er dreift.
Um er að ræða einelti ef einstaklingi líður illa vegna þess að hann verður endurtekið fyrir...

  • stríðni.
  • hótunum.
  • útilokun.
  • líkamlegu ofbeldi.
  • annarri niðurlægjandi áreitni.

Ofbeldi er meiðandi hegðun þar sem einstaklingur eða hópur beitir valdi til að meiða eða niðurlægja aðra.

Að þekkja einelti
Sá einstaklingur sem verður fyrir einelti eða ofbeldi segir oft ekki frá því heldur skammast sín og kennir sjálfum sér jafnvel um. Þess vegna er mjög áríðandi að allir þekki einkenni eineltis.
Hugsanlega er um einelti að ræða ef nemandinn...

  • vill ekki fara í skólann.
  • kvartar undan vanlíðan á morgnana.
  • hættir að sinna náminu, einkunnir lækka.
  • fer að koma heim með rifin föt og skemmdar námsbækur.
  • missir sjálfstraustið.
  • einangrast félagslega.
  • neitar að segja frá hvað amar að.
  • verður árásargjarn og erfiður viðureignar.
  • kemur heim í öllum hléum í skólanum.
  • vill ekki taka þátt í félagsstörfum í skólanum.

Verði foreldrar eða starfsmenn varir við einhver þessara einkenna eða önnur sem benda til að nemandanum líði illa er mikilvægt að kanna málið og hafa samband við stjórnendur, námsráðgjafa eða umsjónakennara viðkomandi nemanda.

Ábyrgð
Ef upp kemur einelti eða annað ofbeldi í skólanum eiga skólastjórnendur að vinna að lausn málsins. Leita skal aðstoðar námsráðgjafa og annars fagfólks eftir þörfum. Annað starfsfólk, foreldrar og nemendur geta aðstoðað við lausn mála. Vakni grunur um einelti eða ofbeldi á strax að láta stjórnendur, námsráðgjafa eða umsjónarkennara viðkomandi nemenda vita. Málum sem tengjast einelti er vísað til nemendaverndarráðs en það skipa hjúkrunarfræðingur, forvarnafulltrúi og námsráðgjafi. Hlutverk ráðsins er að skoða öll slík mál og það kallar aðra til eftir þörfum.

Aðgerðaáætlun

  • Allir nemendur skulu fræddir um stefnu skólans: Einelti og ofbeldi leyfist ekki.
  • Ávallt sé lögð áhersla á góð samskipti innan skólans.
  • Að brýnt sé fyrir nemendum að þegar ágreiningur kemur upp þeirra á milli sé rétt að ræða málin og reyna að komast að málamiðlun og fá aðstoð til þess frá öðrum ef á þarf að halda.
  • Nemendur séu hvattir til að láta vita ef þeir eða aðrir verða fyrir einelti eða ofbeldi, öllum á að geta liðið vel í skólanum og njóta virðingar sem einstaklingar.
  • Gera þarf nemendum grein fyrir því að ef þeir segja frá því að einhverjum líði illa vegna eineltis eða annars ofbeldis sé það trúnaðarmál.
  • Nemendur séu hvattir til að taka afstöðu gegn einelti og ofbeldi í verki með því að bregðast við til hjálpar og láta vita.
  • Einnig er mikilvægt að gera nemendum grein fyrir því að það að skilja útundan og hunsa er jafnmikið einelti og að hæðast að eða berja.
  • Allir foreldrar/forráðamenn fái upplýsingar um stefnu skólans í eineltis- og ofbeldismálum og séu hvattir til að leggja skólanum lið.
  • Foreldrar séu beðnir að láta börn sín vita að þeir styðji stefnu skólans og vilji hvorki að þau séu lögð í einelti, leggi aðra í einelti né séu áhorfendur að einelti eða ofbeldi.
  • Foreldrar séu hvattir til að hafa samband við umsjónarkennara, námsráðgjafa eða skólastjóra ef þeir fá grun um einelti eða ofbeldi í skólanum.
  • Kanna skal líðan nemenda reglulega.
  • Áætlun um viðbrögð við einelti verði kynnt reglulega á skjávarpa í sal.


Síðast endurskoðað í mars 2009.

Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 


Áskrift

Skráning á póstlista.

Vinsamlegast athugaðu að netfangið sé rétt slegið inn.


Stuðnings valmynd



þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica útlitshönnunútlitshönnun - nánari upplýsinga á heimasíðu eplica.