Forvarnastefna

Forvarnastefna Fjölbrautaskóla Suðurnesja


Forvarnafulltrúi


Meginmarkmið:
Að nemendur Fjölbrautaskóla Suðurnesja tileinki sér heilbrigða lífssýn og vímulausan lífsstíl.

Deilimarkmið:

  • Að styrkja sjálfsmynd nemenda.
  • Að reglur skólans um meðferð og neyslu áfengis og annarra vímuefna í húsakynnum, á lóð skólans, á ferðalögum og skemmtunum á vegum skólans séu virtar.
  • Að allir nemendur skólans séu upplýstir um skaðsemi vímuefna á líf og heilsu.
  • Að vinna að forvarnastarfi með foreldrum/forráðamönnum nemenda.
  • Að taka þátt í forvarnastarfi sveitarfélaganna.


Aðgerðaráætlun:

  • Forvarnafulltrúi starfar við skólann og vinnur að skipulagi forvarnastarfs með stjórnendum og námsráðgjafa og er félagslífsfulltrúa og nemendum til aðstoðar varðandi skipulagningu skemmtana.
  • Forvarnafulltrúi hefur samráð við félagsmálayfirvöld í sveitarfélögunum á Suðurnesjum um málefni ósjálfráða nemenda er tengjast neyslu vímuefna og vinnur úr upplýsingum varðandi vímuefnavanda nemenda og kemur málefnum í viðurkenndan farveg.
  • Í öllu forvarnastarfi skólans er lögð áhersla á að nemendur taki gagnrýna afstöðu til fíkniefnaneyslu.
  • Forvarnavika í FS er á haustönn. Þá eru skipulagðir fyrirlestrar á sal og aðrir viðburðir.
  • Ef ósjálfráða nemendur eru sýnilega undir áhrifum vímuefna á skemmtunum eða ferðalögum skólans hefur forvarnafulltrúi samband við foreldra og biður þá að ná í barn sitt. Sjálfráða nemendur eru keyrðir heim ef þeir eru sýnilega undir áhrifum vímuefna. Nemendur þurfa í kjölfarið að funda með forvarnafulltrúa um lífstíl sinn. Við endurtekin brot á reglum skólans er nemandi útilokaður frá skemmtunum og ferðalögum á hans vegum.
  • Allir nemendur á fyrsta námsári eru í námsáfanga þar sem meðal annars er fjallað um sjálfsmynd, sjálfsstyrkingu, einelti og fordóma.
  • Í öllum námsáföngum skólans er sjálfsmynd nemenda styrkt með því að kennarar hvetja þá til dáða og hrósa þeim fyrir vel unnin verk.


Síðast endurskoðað í mars 2009.

Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 


Áskrift

Skráning á póstlista.

Vinsamlegast athugaðu að netfangið sé rétt slegið inn.


Stuðnings valmynd



þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefhönnunvefhönnun - nánari upplýsinga á heimasíðu eplica.