Hefðir í skólastarfi

Hefðir í skólastarfi

Nýnemadagur

Í byrjun skólaársins er svokallaður nýnemadagur. Þá eru allir nýnemar boðaðir í skólann þar sem þeir fá kynningu á skólanum, störfum nemendafélagsins og þeirri þjónustu sem stendur þeim til boða. Þá er vefur skólans og skólakerfið Inna kynnt, farinn ratleikur um skólann og síðast en ekki síst er hópefli. Tilgangurinn með þessum sérstaka nýnemadegi er fyrst og fremst að gera yngstu nemendunum auðveldara að takast á við að hefja nám í nýjum skóla þannig að þau komi betur undirbúin á fyrsta kennsludegi og hafa fengið tækifæri til að kynnast nýju umhverfi í eigin hópi.
 

Móttaka nýnema

Í byrjun haustannar vígja eldri nemendur nýnema inn í skólann. Væntanlegir útskriftarnemendur vígja þá nýnemana inn í skólann á táknrænan hátt. Að lokum fá allir veitingar og um kvöldið er Busaball.
  

Göngudagur

Á haustönn er svokallaður göngudagur þar sem starfsfólk og nemendur fara í óvissugönguferð einhvers staðar á Reykjanesskaga eða innan bæjarmarkanna. Á áfangastað er farið í leiki og boðið upp á veitingar.
  

Opinn dagur

Opinn dagur er að jafnaði aðra hverja haustönn í Fjölbrautaskóla Suðurnesja. Þá fer fram hefðbundin kennsla á laugardegi og foreldrar og íbúar svæðisins eru boðnir hjartanlega velkomnir í heimsókn. Gestum er boðið að skoða skólann og starfsemi hans, sitja í kennslustundum og njóta fjölbreyttrar dagskrár á göngum skólans og á sal.
 

Þemadagar

Á hverri vorönn eru svokallaðir þemadagar í 2-3 daga. Hefðbundin kennsla er lögð til hliðar og nemendur skipta sér í hópa og vinna margvísleg verkefni undir handleiðslu gestakennara, kennara og nemenda.
  

Starfshlaup

Starfshlaup fer fram síðasta skóladag fyrir páskafrí. Nokkur lið taka þátt hverju sinni og skipta nemendur skólans sér í liðin. Fyrir hverju liði fara tveir fyrirliðar sem koma úr hópi væntanlegra útskriftarnemenda og þeir fá síðan aðra nemendur til liðs við sig til þess að leysa ýmsar þrautir. Hvert lið þarf að leysa u.þ.b. 50 verkefni, m.a. í flestum greinum sem kenndar eru við skólann en að auki er keppt í reiptogi, körfubolta, kappáti, spuna, skák, fatahönnun o.s.frv. Sigurvegararnir fá pizzaveislu að launum.
 

Dimissio

Síðasta kennsludag hverrar annar dimmitera útskriftarnemendur. Þeir æfa dagskrá sem flutt er á sal skólans fyrir hádegi og sýna skólalífið í spaugilegu ljósi. Um kvöldið er hátíðarkvöldverður þar sem útskriftarnemendur og starfsmenn skólans borða saman og flytja heimatilbúin skemmtiatriði.
  
Síðast breytt: 9. apríl 2013

Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 


Áskrift

Skráning á póstlista.

Vinsamlegast athugaðu að netfangið sé rétt slegið inn.


Stuðnings valmynd



þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefurvefur - nánari upplýsinga á heimasíðu eplica.