Til foreldra
Til foreldra
- Fjölbrautaskóli Suðurnesja býður upp á fjölbreytt námsframboð en í skólanum er boðið upp á 33 námsbrautir; stúdentsnám, verknám og starfsnám. Í upphafi náms síns velja nemendur sér námsbraut en geta skipt um braut eða svið ef þeir kjósa. Nemendur eru hvattir til að nýta sér aðstoð námsráðgjafa við val á námsbraut. Mikilvægt er að nemendur og aðstandendur þeirra kynni sér vel þær námsbrautir sem í boði eru og þekki vel uppbyggingu þeirrar brautar sem verður fyrir valinu.
- Skólinn starfar samkvæmt áfangakerfi sem er mjög sveigjanlegt kerfi sem býður upp á mikla möguleika. Nemendur geta ráðið eigin námshraða og valið hversu marga áfanga þeir taka á hverri önn. Þá er boðið upp á hægferðir fyrir þá sem það þurfa sem og fornám og braut fyrir fatlaða nemendur.
- Í Fjölbrautaskóla Suðurnesja eiga nemendur að mæta í allar kennslustundir. Sérstakar reglur gilda um frávik frá þeirri reglu og viðurlög ef nemendur uppfylla ekki skilyrði um mætingar. Nemendur sem mæta illa geta átt von á að fá ekki skólavist á næstu önn eða fá aðeins inni í skólanum gegn ströngum skilyrðum um mætingar. Foreldrar ósjálfráða nemendra (yngri en 18 ára) geta fengið upplýsingar um mætingar barna sinna hjá umsjónarkennara eða í Innu, upplýsingakerfi framhaldsskólanna.
- Þegar nemendur geta ekki sótt kennslustund þurfa þeir að sækja um leyfi á skrifstofu skólans. Tilkynna þarf veikindi í síma milli kl. 8:00-9:00 eða með tölvupósti. Það þarf að sækja um leyfi fyrirfram. Þegar sótt er um leyfi frá skóla til að fara á heilbrigðisstofnun (s.s. til læknis, tannlæknis, augnlæknis, í sjúkraþjálfun, o.þ.h.) þarf að biðja um staðfestingu á veru á viðkomandi stofnun og skila henni í skólann. Þegar staðfestingin hefur borist skólanum er hún heftuð við umsókn um leyfi og síðan er leyfið afgreitt - ekki fyrr. Ef staðfestingu er ekki skilað inn þá er umsóknin ekki afgreidd og nemandinn fær skráðar fjarvistir þann tíma sem hann var fjarverandi.
- Kennari fylgist með mætingum nemanda og áminnir hann ef þess þarf. Dugi það ekki er málinu vísað til umsjónarkennara sem skoðar heildarmætingar, ræðir við nemandann og kennara hans og leitar skýringa. Ef mætingar batna ekki er málinu vísað til mætingastjóra sem skoðar framhaldið í samvinnu við nemandann, ræðir við námsráðgjafa o.s.frv. Ef nemandinn getur enn lokið önninni með góðu móti er gerður samningur við hann (og foreldra hans sé hann ósjálfráða) um að nemandi fái að ljúka önninni mæti hann í allar kennslustundir. Standi nemandi ekki við samninginn er máli hans vísað til skólaráðs sem ákveður hvort vísa eigi viðkomandi úr skóla.
- Foreldrum ósjálfráða nemenda er gefinn kostur á að fylgjast með námi barna sinna með því að fá aðgang að skólakerfinu Innu. Þar geta þeir séð stundatöflu, námsferil, mætingastöðu, miðannarmat o.fl. Auk þess geta foreldrar leitað til umsjónarkennara til að fá nánari upplýsingar.
- Í hverjum áfanga er gefin út kennsluáætlun þar sem fram kemur skipulag, námsmat o.fl. Kennsluáætlanir annarinnar eru aðgengilegar á vef skólans.
- Auk kennslustunda er svokallað stoð mánudaga - fimmtudaga kl. 11:10 - 11:50. Í stoðtímum eru kennarar í stofum og aðstoða nemendur eins og þeir óska. Nemendur geta því valið í hvaða greinum þeir fara í stoð og hvernig þeir nýta þennan tíma, t.d. með hópavinnu eða lestri á bókasafni. Athygli er vakin á því að tíminn sem fer í stoðið er draginn frá kennslutíma áfanga, stoðtímar eru ekki aukatímar eða viðbót við venjulegan vinnutíma nemenda.
- Um miðja önnina gera kennarar svokallað miðannarmat. Þá meta þeir stöðu hvers nemenda og er niðurstaðan færð í Innu. Miðannarmatið er ekki einkunn og það hefur engin áhrif á lokeinkunn í áfanga. Matinu er ætlað vera upplýsandi fyrir nemandann þannig að hann geti séð hvernig hann stendur, bætt úr þar sem þarf að laga og haldið áfram á sömu braut þar sem hann stendur vel.
- Auk kennslu er boðið upp á margs konar þjónustu í skólanum, svo sem námsráðgjöf, bókasafn, mötuneyti, viðtalstíma skólahjúkrunarfræðings og forvarnarfulltrúa o.fl. Foreldrar eru hvattir til að kynna sér þessa þjónustu en upplýsingar um hana eru að finna hér á vef skólans.
- Nemendafélagið NFS stendur fyrir margvíslegum uppákomum yfir veturinn og hefur tekið þátt í spurningakeppninni Gettu betur, ræðukeppni MORFÍS og ýmsum íþróttakeppnum.
- Í upphafi haustannar er boðað til kynningarfundar fyrir foreldra nýnema. Þar er skólinn kynntur og foreldrum gefst kostur á að hitta umsjónarkennara barna sinna. Fundurinn er auglýstur í staðarblöðum og á vef skólans.
- Á hverri önn greiða nemendur skólagjöld. Innritunargjald er 6.000 kr. en ofan á það leggst pappírsgjald sem er 2.000 kr. Allir verða því að greiða 8.200 til að innritast í skólann. Nemendur velja síðan sjálfir hvort þeir greiða í skólasjóð (1.000 kr.) og félagsgjald nemendafélags sem er 2.500 kr. Efnisgjöld í verknámi eru 10.000 kr. á önn nema í grunnnámi húsasmíða þar sem sem nemendur greiða 15.000. Í grunnnámi háriðna greiða nemendur 85.000 í upphafi náms en innifalið í því er pakki með tækjum og efnum sem nemendur nota í námi sínu í deildinni.
- Þegar nemandi fellur í áfanga þarf hann að greiða endurinnritunargjald sem er 500 kr. á hverja einingu.

