Skipulag kennslu
Skipulag kennslu
Kennsluhættir
Í Fjölbrautaskóla Suðurnesja er lögð áhersla á að skapa góðan vinnuanda í skólastofunum þar sem metnaður ríkir.
- Í skólanum er sérstök áhersla lögð á mannlega þáttinn og að gagnkvæm virðing og umburðarlyndi ríki í samskiptum kennara og nemenda.
- Markmiðið er að nota árangursríkar og fjölbreyttar kennsluaðferðir sem taka mið af þörfum nemenda, námsgreinum og verkefnum, t.d. fyrirlestra, paravinnu, hópavinnu o.s.frv. Kennsluaðferðir séu miðaðar við nýjustu upplýsingatækni.
- Kennarar skólans eiga gott samstarf og á hverri önn eru haldnir 3-4 deildarfundir og 3-4 sviðsfundir þar sem þeir ræða fagleg mál og samræma starfshætti sína.
- Kennsla er skipulögð í 55, 80 og 120 mínútna kennslustundum, frá kl. 8:05 til 16:25 mánudaga til fimmtudaga og 8:05-14:20 á föstudögum.
- Frá mánudögum til fimmtudaga eru stoðtímar í 40 mínútur kl. 11:10-11:50 þar sem hefðbundin kennsla er lögð niður en kennarar eru í stofunum nemendum til aðstoðar.
- Nemendur sem eru 102 og 193-áföngum í íslensku, stærðfræði, ensku og dönsku mæta í stoðtíma í hverjum slíkum áfanga aðra hverja viku..
- Stoðkerfið gefur kennurum svigrúm til að veita nemendum einstaklingsbundna aðstoð og nemendur fá aðgang að kennurum þegar þeir þurfa á aðstoð að halda, en fá einnig tækifæri til að vinna saman í hópum. Stoðkerfið eflir tengsl milli kennara og nemenda.
Kennsluáætlanir
Við upphaf kennslu fá nemendur kennsluáætlun frá kennara þar sem tilgreind eru:
- námsmarkmið viðkomandi námsáfanga.
- námsgögn.
- áætluð yfirferð.
- námsmat og reglur um framkvæmd þess, komi slíkt ekki fram í skólanámskrá.
- vægi verklegra þátta, ritgerða, munnlegs prófs o.s.frv. í lokaeinkunn.
Síðast breytt: 21. janúar 2013.

