Inna - upplýsingakerfi

Skólakerfið INNA

INNA er upplýsingakerfi fyrir framhaldsskóla. Það er hluti af framtíðarsýn menntamálaráðuneytisins í upplýsingatækni. INNU er ætlað að vera tæki til að auðvelda stjórnun framhaldsskóla, það veitir starfsmönnum og nemendum framhaldsskóla yfirlit yfir nám og námsframvindu og auðveldar stjórnun námskeiða og námsframboðs.

Nemendur hafa aðgang að eigin upplýsingum í INNU og fá aðgangsorð að kerfinu þegar þeir hefja nám í skólanum. Þeir geta þá skoðað stundatöflu sína, námsferil, mætingar, miðannarmat o.fl.

Foreldrar/forráðamenn nemenda yngri en 18 ára fá aðgangsorðið sent í pósti og hafa þá sama aðgang að kerfinu og börn sín. Þeir foreldrar sem ekki hafa aðgangsorð undir höndum en óska eftir því geta haft samband við áfangastjóra.

Skýringar á viðveruskráningu í INNU:
L: Leyfi
B: Leyfi vegna íþróttaþátttöku
W:  Læknisvottorð
Ó:  Ósamþykkt beiðni
V:  Veikindi
F:  Fjarvist
X:  Forföll kennara / uppákomur FS
M:  Mæting
S:  Seinkoma
Gefið er eitt fjarvistastig fyrir óútskýrða fjarvist og 1/3 stig fyrir seinkomu.

Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 


Áskrift

Skráning á póstlista.

Vinsamlegast athugaðu að netfangið sé rétt slegið inn.


Stuðnings valmynd



þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefumsjónvefumsjón - nánari upplýsinga á heimasíðu eplica.