Móttökuáætlun
Móttökuáætlun fyrir nemendur með annað móðurmál en íslensku
Skv. 3. gr. reglugerðar um rétt nemenda í framhaldsskólum til kennslu í íslensku skulu framhaldsskólar setja sér móttökuáætlun fyrir nemendur með annað móðurmál en íslensku. Áætlunin skal taka mið af bakgrunni þeirra, tungumálafærni, færni á öðrum námssviðum og af þeirri kennslu og stuðningi sem veitt er. Í móttökuáætluninni er meðal annars fjallað um innritun nemenda, samstarf við grunnskóla, fyrirkomulag móttökuviðtals, gerð einstaklingsnámskrár og skipulag samstarfs milli kennara og sérfræðinga innan skólans.
Innritun nemenda
Nemendur innrita sig í gegnum heimasíðu Menntagáttar hafi þeir tök á því en geta annars komið á skrifstofu skólans og fyllt út umsókn. Námsráðgjafi hefur svo samband við þá til að boða þá ásamt foreldrum í móttökuviðtal.
Samstarf við grunnskóla
Ef nemandi með annað móðurmál en íslensku sem hefur nám við Fjölbrautaskóla Suðurnesja kemur frá grunnskóla hér á landi mun námsráðgjafi hafa samband við skólann til að afla þeirra gagna og upplýsinga sem til eru.
Móttökuviðtal
Námsráðgjafi skipuleggur móttökuviðtal við hvern nemanda og foreldra hans. Túlkur verður viðstaddur ef þess er þörf og sér skólinn þá um að útvega hann. Verkefnastjóri yfir námi nemenda með annað móðurmál en íslensku verður einnig viðstaddur. Í viðtalinu er upplýsinga um bakgrunn nemenda og aðstæður foreldra aflað til að geta mætt einstaklingsbundnum þörfum þeirra sem best. Þá er nemanda og foreldrum veittar allar nauðsynlegar upplýsingar um starfshætti skólans, þjónustu og skólareglur. Einnig verður stuðningur sem stendur nemandanum til boða, bæði í formi náms- og starfsráðgjafar auk annars stuðnings, kynntur í viðtalinu. Námsráðgjafi og verkefnastjóri eru nemendum með annað móðurmál en íslensku til aðstoðar, og hittir verkefnastjórinn umsjónarnemendur sína að minnsta kosti einu sinni í mánuði. Í viðtalinu fá nemandi og foreldrar einnig upplýsingar um þá starfsemi sem skólinn býður upp á utan lögbundinnar kennslu eins og til dæmis það félags- og tómstundastarf sem nemendafélag skólans stendur fyrir.
Gerð einstaklingsnámskrár fyrir nemendur
Þeir áfangar sem nemandi skráist í eru valdir í samráði við hann og reynt verður eins og hægt er að hafa stundatöfluna í samræmi við áhugasvið nemanda. Allir nemendur sem eru með annað móðurmál en íslensku þurfa þó að ljúka áföngunum Íslenska fyrir útlendinga (ÍSA), Íslenska daglegs lífs (ÍSD) og Íslenskt talmál (ÍST). Sérstakur lífsleikniáfangi hefur líka verið í boði fyrir hópinn sé hann nógu fjölmennur. Kennsluáætlanir eru síðan gerðar í hverjum áfanga fyrir nemendur.
Við skipulag námsins hjá nemendum með annað móðurmál en íslensku er lögð áhersla á að þeir séu í einhverjum almennum áföngum með íslenskum nemendum til að styrkja félagsleg tengsl og gagnkvæma félagslega aðlögun milli erlendra og íslenskra nemenda.
Skipulag samstarfs milli kennara og sérfræðinga innan skólans
Samstarf er á milli kennara sem kenna nemendum með annað móðurmál en íslensku kjarnaáfangana sem þeir þurfa að taka en námsráðgjafi eða verkefnastjóri sjá svo oft um milligöngu milli þeirra kennara sem kenna önnur fög.

