Náttúrufræðibraut
Náttúrufræðibraut (NÁ) 140 ein.
Prentvæn útgáfa
Námsáætlun-skipting á annir
Meginmarkmið náms á náttúrufræðibraut er að veita nemendum góða, almenna undirstöðuþekkingu í bóklegum greinum með áherslu á sérsvið náttúruvísinda. Brautin býr nemendur undir framhaldsnám í háskóla í náttúruvísindum, stærðfræði og öðrum greinum sem byggjast á góðri undirstöðu í náttúruvísindum, s.s. heilbrigðisgreinum og landbúnaðarfræðum. Meðalnámstími er 8 annir og náminu lýkur með stúdentsprófi.
| Kjarni | 98 ein. | |||||||||
| Íslenska | ÍSL | 103 | 203 | (102 | 202 | 212) | 303 | 403 | 503 | 15 ein. |
| Stærðfræði | STÆ | 103 | 203 | (102 | 122 | 202) | 303 | 403 | 503 | 15 ein. |
| Erlend tungumál | 27 ein. | |||||||||
| Enska | ENS | 103 | 203 | (102 | 202 | 212) | 303 | |||
| Danska | DAN | 103 | 203 | (102 | 202 | 212) | ||||
| Franska / Spænska / Þýska | 103 | 203 | 303 | 403 | ||||||
| Saga | SAG | 103 | 203 | 6 ein. | ||||||
| Félagsfræði | FÉL | 103 | 3 ein. | |||||||
| Lífsleikni | LKN | 103 | 3 ein. | |||||||
| Náttúrufræði | 21 ein. | |||||||||
| Eðlisfræði | EÐL | 103 | ||||||||
| Efnafræði | EFN | 103 | ||||||||
| Jarðfræði | JAR | 103 | ||||||||
| Líffræði | LÍF | 103 | ||||||||
| Náttúruvísindi | NÁT | 103 | 113 | 123 | ||||||
| Íþróttir | ÍÞR | 1B1 | 1V1 | 1V1 | 1D1 | 2V1 | 2V1 | 2V1 | 2V1 | 8 ein. |
| Kjörsvið | 30 ein. | |||||||||
| Kjörsvið felur í sér sérhæfingu í náttúrufræðigreinum og stærðfræði í samræmi við markmið brautarinnar. | ||||||||||
| Kjörsviðsgreinar náttúrufræðibrautar eru: | ||||||||||
| Eðlisfræði | EÐL | 203 | 303 | 403 | ||||||
| Efnafræði | EFN | 203 | 303 | 313 | ||||||
| Jarðfræði | JAR | 113 | 203 | 213 | ||||||
| Líffæra- og lífeðlisfræði | LOL | 103 | 203 | |||||||
| Líffræði | LÍF | 113 | 203 | 303 | ||||||
| Umhverfisfræði | UMH | 103 | ||||||||
| Stærðfræði | STÆ | 313 | 413 | 513 | 603 | 703 | ||||
Skóli getur bætt við áföngum í ofannefndum greinum sbr. það sem segir um áfangalýsingar í almennum hluta aðalnámskrár framhaldsskóla.
Nemandi velur sér ekki færri en þrjár greinar sem kjörsviðsgreinar, annaðhvort viðbót við kjarnagreinar eða nýjar greinar.
Samanlagt nám í grein á kjörsviði og í kjarna verði að lágmarki 9 einingar.
Nemandi á náttúrufræðibraut getur einnig tekið allt að 12 eininga nám á kjörsviðum annarra brauta sem hluta af sínu kjörsviði. Þó mega einingar í grein ekki vera færri en 9.
Frjálst val nemanda: 12. ein.
Nemandi velur 12 einingar af námsframboði viðkomandi skóla.
Skóla er einnig heimilt að meta inn í frjálst val nám sem nemandi hefur tekið í öðrum skólum.

