LEK-2036
Í áfanganum er haldið áfram að dýpka skilning nemenda á grunnþáttum leiklistar. Sérstök áhersla er á spuna og persónusköpun þar sem nemendur æfa senur úr ýmsum leikritum ásamt því að æfa og búa til stuttan einþáttung. Einþáttungar og senur verða teknir upp á videovél af nemendum. Nemendur munu einnig þjálfast í að leikstýra hvorum öðrum og gagnrýna á uppbyggilegan hátt. Farið verður í heimsókn í leikhús og á leiksýningu a.m.k. einu sinni á önninni. Nemendur eru hvattir til að fylgjast með umfjöllun um leiksýningar í fjölmiðlum, sækja leiksýningar og fjalla um þær á gagnrýninn hátt.
- Undanfari: LEK 103

