VGR-4036
Fjallað er um undirstöðuþætti aflmagnara. Nemendur leysa ýmis verkefni þar sem þeir fá frekari æfingu í að gera áætlanir, teikna og smíða rásir sem tengjast lokaverkefninu. Þeir smíða rásaeiningar, mæla og prófa virkni þeirra og notagildi. Nemendur ljúka við smíði og frágang lokaverkefnis. Farið er í bilanaleit í rafeindatækjum.
- Undanfari: VGR 303

