Áfangar

RAM-4036

Í áfanganum er lögð áhersla á að nemendur nái tökum á grunnhugtökum rafeðlisfræðinnar og geti leyst einföld verkefni sem tengjast notkun á raforku og hvernig raforka breytist í ljós- hita- hljóð-, mynd og hreyfiorku. Farið er í uppbyggingu og virkni ýmissa véla, tækja og búnaðar og gerðar tengimyndir og kynnt teiknitákn fyrir þau. Kenndar eru jafngildismyndir fyrir rafrásir í jafnstraums og einfasa riðstraumskerfum, samhliða unnið í mælingarverkefnum.

Farið er í mismunandi áraun rafbúnaðar við ræsingu, tómgang og fullt álag, samhliða unnið í mælingarverkefnum. Farið er í 3ja fasa rafbúnað og tengingar. Fjallað um mælitæki og tengingu þeirra og leyst einföld verkefni er varða rekstur spenna, tækja og véla.
  • Undanfari: RAM 303
 


Áskrift

Skráning á póstlista.

Vinsamlegast athugaðu að netfangið sé rétt slegið inn.


Stuðnings valmynd



þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefhönnunvefhönnun - nánari upplýsinga á heimasíðu eplica.