Áfangar

LKN-7S24

Markmið áfangans er að aðstoða nemandann til þess að kynnast skólanum, félagslífi nemenda, umsjónarkennara sínum og hlutverki hans. Lögð verður áhersla á að styrkja samkennd nemenda, efla tjáningarhæfni þeirra, sjálfstraust og öryggiskennd. Lögð er áhersla á viðfangsefnið ,"einstaklingur, samfélag, menning". Nálgun getur verið með margvíslegum hætti og tengst m.a. samskiptaháttum, íslenskri menningu, fjölmiðlun, tjáningu og þjálfun í að koma skoðunum sínum á framfæri, að efla sjálfstraust nemenda og traust á náunganum, ábyrgð einstaklingsins, neytendamálum, búsetu, tómstundum og verkmenningu svo að dæmi séu nefnd. Í áfanganum er lögð áhersla á viðfangsefnið "einstaklingur, umhverfi, náttúra". Nálgunin getur verið með margvíslegum hætti og tengst umhverfisvernd, náttúruskoðun, friðun dýralífs og vistkerfa og nýtingu náttúruauðlinda svo að einhver dæmi séu nefnd.
  • Undanfari: LKN 6S2
  • Athugasemd: Áfangi fyrir nemendur á starfsbraut.
 


Áskrift

Skráning á póstlista.

Vinsamlegast athugaðu að netfangið sé rétt slegið inn.


Stuðnings valmynd



þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefhönnunvefhönnun - nánari upplýsinga á heimasíðu eplica.