Áfangar

SAT-2S24

Námið er að hluta til bóklegt. Nemendur kynnast þeim almennu reglum sem gilda í mannlegum samskiptum á vinnustöðum. Fjallað er bæði um skrifaðar og óskrifaðar reglur sem gilda í samskiptum við samstarfsmenn og stjórnendur. Unnið er með undirstöðuatriði í samskiptum við viðskiptavini í þjónustustörfum. Frætt er um réttindi og skyldur starfsmanna sem gilda á almennum vinnumarkaði og einnig á vernduðum vinnustöðum. Fjallað verður um stéttarfélög og hlutverk þeirra á samfélaginu. Farið verður í vettvangsferðir þar sem nemendum eru kynnt ýmis konar atvinnufyrirtæki og leiðbeint með hugsanlega atvinnuþátttöku.
  • Athugasemd: Áfangi fyrir nemendur á starfsbraut.
 


Áskrift

Skráning á póstlista.

Vinsamlegast athugaðu að netfangið sé rétt slegið inn.


Stuðnings valmynd



þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefhönnunvefhönnun - nánari upplýsinga á heimasíðu eplica.