STV-7S5T
Í starfsnámsáföngum er lögð áhersla á að kynna fjölbreytt störf og mismunandi vinnustaði á almennum vinnumarkaði og vernduðum vinnustöðum sem og hæfingarstöðvum. Kynningar og starfsþjálfun er skipulögð eftir óskum og þörfum nemenda og forráðamanna þeirra og í samvinnu við starfsráðgjafa, vinnumiðlanir og aðrar þær stofnanir er málið varðar.
- Athugasemd: Áfangi fyrir nemendur á starfsbraut.

