HGR-5036
Nemandi öðlast faglegt sjálfstæði í mótun á blautbylgjum og mismunandi upprúlli með klípum ásamt úrgreiðslu. Ennfremur öðlast hann frekari færni í daggreiðslu, brúðargreiðslu, svo og uppsetningu á síðu hári. Leitast er við að glæða listrænan skilning á handverkinu sem nýtist nemandanum við hinar ýmsu aðstæður. Nemandinn þjálfast í að leysa úr ólíkum verkefnum sem lögð eru fyrir hann.
- Undanfari: HGR 402
- Athugasemd: Áfanginn er kenndur í Iðnskólanum í Hafnarfirði og Iðnskólanum í Reykjavík.

