UMÖ-1036
Í áfanganum er lögð áhersla á hlutverk og skyldur leik- og grunnskóla í uppeldi og kennslu barna. Nemendur öðlist þekkingu á daglegu skipulagi í leik og grunnskóla. Nemendur geri sér grein fyrir starfssviði starfsmanna í leik- og grunnskólum við uppeldi, kennslu og umönnun barna. Einnig að nemendur átti sig á ábyrgð starfsmanna sem fyrirmyndar og félagsmótunaraðila. Nemendur kynnist 18 mismunandi uppeldisaðferðum með tilliti til þroska og aldurs barna. Kennslu í áfanganum er skipt í fyrirlestra, heimanám, verkefni, umræður og vettvangsnám.
- Athugasemd: Áfangi á skólaliðabraut, braut fyrir leiðbeinendur í leikskólum og braut fyrir stuðningsfulltrúa í grunnskólum.

