FYR-1024
Nemendur fá að kynnast grundvallaratriðum í rekstri fyrirtækja. Farið verður í mikilvægi markmiða og áætlanagerðar og helstu hagsmunaaðilar fyrirtækja skoðaðir. Einnig kynnast nemendur ýmsum rekstrarformum og hverjar helstu atvinnugreinar eru í íslensku samfélagi. Sérstök áhersla verður lögð á ferðaþjónustu og skoðað hvernig hún tengist hagvexti á Íslandi. Að lokum verður farið í helstu atriði í gerð viðskiptaáætlana og unnið verkefni í tengslum við það.
- Undanfari: Sjá almennar forkröfur brautarinnar
- Athugasemd: Áfangi á flugþjónustubraut.

