VFR-1024
Nemendur öðlast innsýn í helstu gerðir aflvéla sem notaðar eru til lands og sjávar. Þeir kynnast aðferðum til að meta afköst og nýtingu aflvéla og þekkja forsendur fyrir góðri endingu véla. Nemendur þekkja tilgang og verkun gíra og annars algengs búnaðar til aflyfirfærslu.
Að loknu námi í áfanganum eiga nemendur að þekkja:
- helstu aflvélar og flokka þeirra; brunahreyfla, hverfla, gufuvélar og vindmyllur.
- helstu hluta brunahreyfla, nöfn þeirra og hlutverk.
- vinnureglur brunahreyfla.
- helstu eldsneytiskerfi ottó- og díselhreyfla ásamt kaldræsibúnaði þeirra síðartöldu.
- mikilvægi þess að nota handbækur framleiðenda til lausnar viðfangsefna í vélaviðhaldi og viðgerðum.
Að loknu námi í áfanganum eiga nemendur að geta:
- gert einfalda útreikninga á afköstum og eldsneytisnýtingu brunahreyfla.
- lýst einföldum útreikningum á afköstum og eldsneytisnýtingu brunahreyfla.
- lýst tilgangi og verkun einfaldra tannhjóla, vökvadrifa og gíra.
- gert grein fyrir almennu viðhaldi brunahreyfla og kerfa þeirra, m.a. með tilvísun í viðgerðarbækur.

- Undanfari: Enginn