Forvarnafulltrúi
Meginmarkmið:
- Að nemendur Fjölbrautaskóla Suðurnesja tileinki sér heilbrigða lífssýn og vímulausan lífsstíl.
Deilimarkmið:
- Að styrkja sjálfsmynd nemenda.
- Að reglur skólans um meðferð og neyslu áfengis og annarra vímuefna séu virtar í húsakynnum og á lóð skólans, á skemmtunum og ferðalögum á vegum skólans.
- Að allir nemendur skólans séu upplýstir um skaðsemi vímuefna á líf og heilsu.
- Að vinna að forvarnastarfi með foreldrum/forráðamönnum nemenda.
- Að taka þátt í forvarnastarfi sveitarfélaganna.
Aðgerðaráætlun:
- Forvarnafulltrúi starfar við skólann og vinnur að skipulagi forvarnastarfs með stjórnendum og námsráðgjöfum og er félagslífsfulltrúa og nemendum til aðstoðar varðandi skipulagningu skemmtana.
- Forvarnafulltrúi hefur samráð við félagsmálayfirvöld í sveitarfélögunum á Suðurnesjum um málefni nemenda er tengjast neyslu vímuefna og kemur þeim í viðurkenndan farveg.
- Í skólanum er boðið upp á þjónustu sálfræðings sem nemendur geta leitað til.
- Skólinn hefur samstarf við lögreglu í tengslum við skemmtanir á vegum skólans.
- Í öllu forvarnastarfi skólans er lögð áhersla á að nemendur taki gagnrýna afstöðu til fíkniefnaneyslu.
- Forvarnavika í skólanum er á haustönn í samvinnu við sveitarfélögin á svæðinu. Þá eru skipulagðir fyrirlestrar og aðrir viðburðir.
- Ef ósjálfráða nemendur eru sýnilega undir áhrifum vímuefna á skemmtunum eða ferðalögum skólans hefur forvarnafulltrúi samband við foreldra og biður þá að ná í barn sitt. Sjálfráða nemendum sem eru sýnilega undir áhrifum vímuefna á skemmtunum er boðið að hringja og láta ná í sig en er vísað burt af skemmtuninni. Nemendur þurfa í kjölfarið að funda með forvarnafulltrúa. Við brot á reglum skólans er nemandi tímabundið útilokaður frá skemmtunum og ferðalögum á hans vegum.
- Nemendur á fyrsta námsári eru í námsáfanga þar sem meðal annars er fjallað um sjálfsmynd, sjálfsstyrkingu, einelti og fordóma.
- Í öllum áföngum er sjálfsmynd nemenda styrkt með því að kennarar hvetja þá til dáða, gefa góð ráð og hrósa fyrir vel unnin verk.
- Skólinn styður við bakið á þeim nemendum sem þurfa úrræði vegna sérstakra aðstæðna.
Síðast endurskoðað í október 2019.