16. maí 2013

Íslykill fyrir Innu
Næsta haust þurfa nemendur skólans og foreldrar þeirra að nota Íslykilinn til að nýta aðgang sinn að skólakerfinu Innu. Íslykill er ný innskráningarleið sem er í þróun hjá Þjóðskrá Íslands og mun leysa veflykil ríkisskattstjóra af hólmi sem innskráningarleið hjá Ísland.is. Notkun lykilsins fyrir Innu verður kynnt nánar þegar þar að kemur.


ForsetinnH2012-18



Tannlæknaþjónustu fyrir börn og unglinga
Sjúkratryggingar Íslands og Tannlæknafélag Íslands hafa undirritað samning um tannlæknaþjónustu fyrir börn og unglinga yngri en 18 ára. Samningurinn tekur gildi 15. maí og tekur þá til 15, 16 og 17 ára barna. Þann 1. september nk. munu 3ja, 12, 13 og 14 ára börn bætast við.  Mikilvægt er fyrir barnafólk að kanna hvort tannlæknir heimilisins sé aðili að samningnum. Athygli er vakin á því að réttur til þjónustu samkvæmt. samningnum fellur niður við 18 ára aldur (afmælisdag einstaklingsins). Því er mikilvægt fyrir þá einstaklinga sem hafa hug á að nýta sér þjónustuna og verða 18 ára á fyrstu vikum eftir gildistöku hans að bóka tíma sem fyrst hjá tannlækni. Nánari upplýsingar eru hér á vef Sjúkratrygginga Íslands.



Lok annar og útskrift
Nú hillir undir lok annarinnar en prófum lýkur þann 17. maí. Opnað verður fyrir einkunnir í Innu miðvikudaginn 22. maí og sama dag verður prófsýni. Nemendur eru hvattir til að mæta á prófsýnidag, skoða próf sín og gera athugasemdir ef þess þarf. Útskrift verður á sal skólans laugardaginn 25. maí kl, 14:00.


UtskriftH2012-072



NFS-fréttir
Starfsemi nemendafélagins er að mestu leyti lokið þetta skólaárið en hápunktur hennar var glæsileg árshátíð þann 18. apríl. Í sömu viku var ný stjórn félagsins kosin en hana skipa Arnór Svansson, Elva Dögg Sigurðardóttir, Björn Elvar Þorleifsson og Ólafur Ingvi Hansson.



Á döfinni
● Próf standa yfir 2.-16. maí.
● Sjúkrapróf verða 17. maí.
● Einkunnaafhending og prófsýning verða 22. maí.
● Útskrift vorannar er laugardaginn 25. maí.
● Nýnemadagur verður föstudaginn 16. ágúst.
● Stefnt er að tofluafhendingu mánudaginn 19. ágúst.
● Kennsla hefst miðvikudaginn 21. ágúst.
Dagatal haustannar kemur á vef skólans í lok maí.


Fjölbrautaskóli Suðurnesja
Sunnubraut 36  |  230 Reykjanesbær  |  Sími 421 3100  |  Fax 421 3107  |  Netfang fss@fss.is