Fréttir
Tveir FS-ingar dúxuðu frá HR
Útskrift Háskólans í Reykjavík fór fram á dögunum og þar voru 432 nemendur brautskráðir frá skólanum. Á þessu ári hefur háskólinn samtals útskrifað hátt í 900 nemendur en á liðnu skólaári stunduðu ríflega 3000 einstaklingar nám við HR. Fjöldi útskriftarnemenda sem ljúka meistaranámi og doktorsnámi í dag er þriðjungur af útskrifuðum nemendum vorsins og hefur fjöldi þeirra aldrei verið meiri.
Finnur Oddsson, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs Íslands, afhenti eftirtöldum nemendum viðurkenningar VÍ fyrir framúrskarandi námsárangur; Snædísi Ósk Sigurjónsdóttur, sem útskrifaðist úr lagadeild, Guðmundi Viktorssyni, sem lauk námi frá tækni- og verkfræðideild, Stellu Guðjónsdóttur, tölvunarfræðideild, og Einari Trausta Einarssyni úr viðskiptadeild.
Það er gaman að segja frá því að þeir Guðmundur og Einar Trausti eru báðir stúdentar frá Fjölbrautaskóla Suðurnesja en þeir útskrifuðust héðan árið 2008. Guðmundur lauk verkfræðinámi frá HR en Einar Trausti lauk námi í sálfræði.
Við óskum þeim Guðmundi og Einari Trausta til hamingju með árangurinn.
Upplýsingarnar og myndirnar með fréttinni eru fengnar af vef Háskólans í Reykavík.
Á myndinni má sjá handhafa viðurkenninga Viðskiptaráðs Íslands fyrir framúrskarandi námsárangur. Frá hægri eru Finnur Oddsson framkvæmdastjóri VÍ, Snædís Ósk Sigurjónsdóttir úr lagadeild, Einar Trausti Einarsson úr viðskiptadeild, Guðmundur Viktorsson úr tækni- og verkfræðideild og Stella Guðjónsdóttir úr tölvunarfræðideild.


