Fréttir
Ísköld gróðursetning
Mánudagurinn 14. fór hópur útskriftarnemenda í hina hefðbundnu gróðursetningu ásamt nokkrum kennurum. Að venju var góð stemmning í hópnum enda hefð fyrir því að boðið er upp á sælgæti og gos í boði skólameistara. Farið var að Rósaselsvötnum fyrir ofan Keflavík en þar á skólinn skika þar sem útskriftarhópar gróðursetja plöntur til minningar um veru sína í skólanum. Að þessu sinni var ansi kalt en þá er bara að klæða af sér veðrið... Skógræktarfólkið vann af krafti og margar hendur unnu létt verk við að koma plöntunum ofan í jörðina.
Svæðinu sem um ræðir fékk skólinn á sínum tíma úthlutað hjá Skógræktarfélagi Suðurnesja. Þeir nemendur sem útskrifast frá skólanum gróðursetja þar plöntur tvisvar á ári; nemendur sem útskrifast á haustönn fara í upphafi haustannar en hópar sem útskrifast að vori gróðursetja þá. Þetta hefur verið gert í þó nokkur ár og er búið að gróðursetja þó nokkuð af plöntum sem eiga vonandi eftir að vaxa þar og dafna.
Hér má sjá nokkrar myndir frá gróðursetningunni.



