Fréttir

ListirV2012-15

Leikhús, myndlist, trúðar...

4.5.2012

Í skólanum eru fjölmargir áfangar sem tengjast listum og hönnun, m.a. leiklist, myndlist, listasaga og fatasaumur. Í þessum áföngum er lögð áhersla á að nemendur fari á sýningar, kynnist vinnuaðstæðum listamanna og þeir fá einnig heimsóknir listamanna sem kynna sig, starf sitt og listsköpun.

Mikilvægt er að nemendur í listgreinum fái innsýn í heim starfandi listamanna. Leikkonan og listamaðurinn Harpa Arnardóttir heimsótti Fjölbrautaskóla Suðurnesja í síðustu kennsluvikunni og ræddi við nemendur í leiklist (LEK103) og listum og menningu (LIM113). Hún sagði frá starfi sínu í leikhúsinu og víðar og deildi lífsýn listamannsins auk þess að bresta í hlutverk trúðsins Gjólu við góðar undirtektir nemenda.

Nemendur í leiklistaráfanganum LEK103 fóru í Borgarleikhúsið á dögunum og sáu hina margrómuðu leiksýningu Vesturports á leikritinu um Rómeó og Júlíu eftir William Shakespeare en leikhúsheimsóknir er fastur liður í áfanganum. Fyrr á árinu fóru nemendur og sáu leiksýninguna Nei ráðherra eftir Ray Cooney ásamt því að skoða ýmsa innviði Borgarleikhússins. Á sýningu Vesturports fengu leikhúsgestir að taka upp síma sína í miðri sýningu og taka myndir af ástum Rómeós og Júlíu sem féll í góðan jarðveg hjá nemendum.

Nemendur í áfanganum listir og menning (LIM113) hafa verið duglegir að upplifa íslenska samtímalist á önninni en þeir fóru á dögunum á sýningu myndlistarmannsins Jóns Axels Björnssonar í Listasafni Reykjanesbæjar í Duushúsum. Duushús voru einnig heimsótt í febrúarmánuði sl. en þá skoðuðu nemendur sýningu Aðalheiðar Eysteinsdóttur Bóndadagur en hún notar óvenjulegan efnivið í verk sín sem hún finnur út í náttúrunni.  Nemendur í LIM113 létu sér þó ekki aðeins nægja að skoða myndlistarheiminn heldur brugðu sér einnig  í Borgarleikhúsið að sjá leiksýningu Vesturports um Axlar-Björn ásamt því að skoða innviði Borgarleikhússins.

Hér má sjá fleiri myndir frá heimsóknum og sýningunum

ListirV2012-02

ListirV2012-16

ListirV2012-06

ListirV2012-11

 




Áskrift

Skráning á póstlista.

Vinsamlegast athugaðu að netfangið sé rétt slegið inn.


Stuðnings valmynd



þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica heimasiðugerðheimasiðugerð - nánari upplýsinga á heimasíðu eplica.