Fréttir

HarkeppniV2010-08

Undankeppni í hársnyrtideild

Þriðjudaginn 16. febrúar var haldin innanhússkeppni í Hársnyrtideild Fjölbrautaskóla Suðurnesja. Allir nemendur deildarinnar tóku þátt þar sem keppt var í frjálsum uppgreiðslum.  Eins og sjá má á myndunum fengu hugmyndaflugið og sköpunargleðin að ráða för hjá nemendum og lögðu þeir sig alla fram.  Keppnin tókst í alla staði mjög vel og var gaman að fylgjast með áhuga nemendanna.  Þrír efstu nemendurnir fara áfram og keppa fyrir hönd FS í Íslandsmóti iðnnema sem haldið verður í Smáralind helgina 19.-20. mars n.k.  Undirbúningur fyrir Íslandsmótið hefst á næstu dögum.  Dómarar keppninnar voru þær Ásdís Björk Pálmadóttir, Íris Jónsdóttir og Svava Jóhannesdóttir kennarar.  Þjálfari keppenda fyrir Íslandsmótið verður Sigurrós Antonsdóttir hársnyrtimeistari.  Erfitt reyndist að velja á milli keppenda en að lokum fór svo að Þórunn María Ríkharðsdóttir hlaut 3ja sæti, í 2. sæti varð Ingey Arna Sigurðardóttir og 1. sætið kom í hlut E. Kamillu Wilberg Antonsdóttur.  TIL HAMINGJU MEÐ ÞAÐ!!! ÁFRAM FS!

Svava Jóhannesdóttir,
fagstjóri hársnyrtideildar

Á efstu myndinni eru frá vinstri Svava Jóhannesdóttir kennari, Kamilla, Ingey og Þórunn.

HarkeppniV2010-01

HarkeppniV2010-02

HarkeppniV2010-03

HarkeppniV2010-04

HarkeppniV2010-05

HarkeppniV2010-06

HarkeppniV2010-07

Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 




Áskrift

Skráning á póstlista.

Vinsamlegast athugaðu að netfangið sé rétt slegið inn.


Stuðnings valmynd



þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica heimasiðugerðheimasiðugerð - nánari upplýsinga á heimasíðu eplica.