Fréttir

UtskriftH2009Frett-01

Útskrift haustannar

Skólaslit haustannar og brautskráning Fjölbrautaskóla Suðurnesja fór fram laugardaginn 19. desember. Að þessu sinni útskrifuðust 52 nemendur; 48 stúdentar, 2 úr verknámi og tveir sjúkraliðar. Karlar voru 27 og konur 25. Alls komu 36 úr Reykjanesbæ, 6 úr Grindavík, 4 komu úr Garði, 2 úr Sandgerði og einn úr Vogum. Auk þess kom einn frá Siglufirði, Akureyri og Kópavogi.

Dagskráin var með hefðbundnu sniði.  Kristján Ásmundsson skólameistari afhenti prófskírteini og flutti ávarp og Guðlaug Pálsdóttir aðstoðarskólameistari flutti yfirlit yfir störf annarinnar.  Jóhanna María Kristinsdóttir nýstúdent flutti ávarp fyrir hönd brautskráðra og Leifur A. Ísaksson kennari flutti útskriftarnemendum kveðjuræðu starfsfólks.  Nemendur Tónlistarskóla Reykjanesbæjar fluttu tónlist en það voru nýstúdentarnir Sævar Bachmann Kjartansson og Sigtryggur Kjartansson.

Við athöfnina voru veittar viðurkenningar fyrir góðan námsárangur og voru þær fjölmargar að þessu sinni.  Eva Björg Óskarsdóttir fékk viðurkenningu fyrir góðan árangur í fata- og textílgreinum, Katla Hlöðversdóttir fyrir líffræði og Anna Þórunn Guðmundsdóttir fyrir góðan árangur í stærðfræði á félagsfræðibraut.  Vilhjálmur Maron Atlason fékk viðurkenningu fyrir góðan árangur í eðlisfræði á viðskipta- og hagfræðibraut og hann fékk einnig viðurkenningu fyrir árangur sinn í ensku, Elísabet Guðjónsdóttir fyrir þýsku og efnafræði og líffræði og Sævar Bachmann Kjartansson fyrir frönsku  og líffræði og jarðfræði.  Guðrún Hildur Jóhannsdóttir fékk viðurkenningar fyrir félagsfræði, spænsku og sögu.  Arnþór Elíasson fékk gjöf frá Verkfræðistofu Suðurnesja fyrir góðan árangur í stærðfræði og hann fékk einnig viðurkenningar fyrir góðan árangur í stærðfræði og raungreinum, ensku og spænsku.  Sólveig Dröfn Jónsdóttir fékk gjöf frá Verkfræðistofu Suðurnesja fyrir góðan árangur í stærðfræði og frá Kanadíska sendiráðinu fyrir afburðaárangur í ensku og frönsku.  Sólveig fékk auk þess viðurkenningar frá skólanum fyrir árangur sinn í stærðfræði á málabraut, sögu, ensku, íslensku, spænsku, dönsku og frönsku.  Sigtryggur Kjartansson fékk gjafir frá frá Verkfræðistofu Suðurnesja og Íslenska stærðfræðafélaginu fyrir góðan árangur í stærðfræði og hann fékk einnig viðurkenningu frá Efnafræðifélagi Íslands fyrir árangur sinn í efnafræði.  Þá fékk Sigtryggur viðurkenningar frá skólanum fyrir góðan árangur í eðlisfræði, efnafræði og jarðfræði, ensku, íslensku, þýsku og dönsku auk viðurkenningar fyrir framúrskarandi árangur í stærðfræði.

Guðbjörg Ingimundardóttir afhenti við athöfnina styrki úr styrktarsjóði Fjölbrautaskóla Suðurnesja.  Sjóðurinn var stofnaður af Kaupfélagi Suðurnesja og Gunnari Sveinssyni, fyrrverandi kaupfélagsstjóra og fyrsta formanni skólanefndar Fjölbrautaskóla Suðurnesja.  Tilgangur sjóðsins er að efla og auka veg skólans með því að styrkja nemendur skólans til náms, að styðja við starfsemi sem eflir og styrkir félagsþroska nemenda og að veita útskriftarnemendum viðurkenningar fyrir frábæran árangur í námi og starfi.  Lilja Björg Jökulsdóttir, Ragnheiður Eir Magnúsdóttir, Tanía Björk Gísladóttir og Tanía Björk Gísladóttir fengu öll 20.000 kr. styrk fyrir góða frammistöðu í ræðumennsku í lífsleikniáföngum.  Þeir Arnþór Elíasson, Pétur Elíasson og Sigtryggur Kjartansson fengu 30.000 kr. styrk fyrir góðan árangur í Gettu betur.

Að venju veitti Sparisjóðurinn í Keflavík nemendum skólans viðurkenningar fyrir góðan námsárangur og afhenti Baldur Þórir Guðmundsson þær fyrir hönd Sparisjóðsins.  Guðrún Hildur Jóhannsdóttir fékk verðlaunin fyrir árangur í samfélagsgreinum og Sigtryggur Kjartansson fyrir tungumál, íslensku og stærðfræði og raungreinar.  Sigtryggur hlaut einnig viðurkenningu fyrir hæstu einkunn á stúdentsprófi og fékk að launum 100.000 kr. styrk frá Sparisjóðnum.

Að lokum sleit Kristján Ásmundsson skólameistari haustönn 2009.

Hér má sjá veglegt myndasafn frá útskriftinni.

UtskriftH2009Frett-02

UtskriftH2009Frett-03

UtskriftH2009Frett-04



Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 



Stuðnings valmynd



þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica heimasiðugerðheimasiðugerð - nánari upplýsinga á heimasíðu eplica.