Fréttir

DimissioH2009-02

Þjóðhátíðarstemmning á dimissio

Föstudaginn 30. nóvember buðu væntanlegir útskriftarnemendur til hátíðar á sal þegar komið var að dimissio þessa önnina. Þá kveður útskriftarhópurinn kennara og nemendur skólans með ýmis konar uppákomum. Að þessu sinni var það þjóðhátíð í Eyjum sem var efst í huga útskriftarnemenda sem höfðu m.a. tjaldað á sal.  Þá klæddist hópurinn lopapeysum og regngöllum og mætti með nauðsynlegustu fylgihluti fyrir vel heppnaða útihátíð.

Hópurinn byrjaði nóttina áður með því að heimsækja nokkra kennara við mismikla hrifningu lærimeistara þeirra.  Um morguninn var svo komið að dagskrá á sal þar sem byrjað var á því að sýna upptöku frá nóttinni.  Þá var boðið var upp á stuttmynd um lífið í skólanum og þar gerðu útskriftarnemendur létt grín að kennurum sínum og öðrum starfsmönnum skólans.  Síðan fór fram verðlaunaafhending en þar fékk útskriftarhópurinn langþráð tækifæri til að veita kennurum sínum viðurkenningar fyrir frammistöðu sína.  M.a. komu þar við sögu ofvirkasti kennarinn, fyndnasti kennarinn, dularfyllsti kennarinn, valdamesti kennarinn og frumlegasti kennarinn.  Hápunkturinn var svo að sjálfsögðu valið á besta kennaranum en það var gamla kempan Þorvaldur Sigurðsson sem hlaut þann heiður að þessu sinni.

Um kvöldið er síðan hin svokallaða síðasta kvöldmáltíð en þá borða útskriftarnemendur og starfsólk skólans saman og gera sér glaðan dag.

Myndir frá Dimissio

DimissioH2009-27

DimissioH2009-16

DimissioH2009-20



Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 




Áskrift

Skráning á póstlista.

Vinsamlegast athugaðu að netfangið sé rétt slegið inn.


Stuðnings valmynd



þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica heimasiðugerðheimasiðugerð - nánari upplýsinga á heimasíðu eplica.