Fréttir

Baltic

FS með aukaaðild að Evrópusambandinu?

Það er kannski ekki rétt að vekja falskar vonir hjá vinum Evrópusambandsins eða hvekkja andstæðinga þess því það er nokkuð orðum aukið að Fjölbrautaskóli Suðurnesja hafi gengið í Evrópusambandið á undan Íslandi. Samt sem áður fór frá okkur sendinefnd á Model European Parliament - Baltic Sea Region í Kaupmannahöfn í lok október síðastliðins.  MEP-BSR  kynnir framhaldsskólanemum starf Evrópusambandsins með því að líkja eftir starfsemi þess með málefnavinnu, nefndarstarfi, þingfundum,  atkvæðagreiðslum og baktjaldamakki.  Á þessu þingi voru fulltrúar frá ríkjum Evrópusambandsins í kringum Eystrasalt auk nokkurra gestaríkja. Norræna ráðherraráðið styrkti ferð okkar enda árið 2007 horfið í aldanna skaut í FS sem annars staðar.  Nemendurnir sem fóru voru þau Hildur Pálsdóttir, Bjarki Rúnarsson, Arnþór Elíasson, Ingimundur Guðjónsson og Sævar Bachmann Kjartansson en  Ægir Karl Ægisson kennari fór með til halds og trausts.   Þau stóðu sig með prýði og höfðu gaman af.


 



Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 



Stuðnings valmynd



þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica heimasiðugerðheimasiðugerð - nánari upplýsinga á heimasíðu eplica.