Fréttir
Vizkustykki komið út
Blaðaútgáfa í skólanum hefur verið frekar fábrotin undanfarnar annir. Það voru því sannkölluð gleðitíðindi þegar nýtt tölublað af skólablaðinu Vizkustykki sá dagsins ljós þann 20. nóvember. Blaðið er mjög glæsilegt að þessu sinni; mikið hefur verið lagt í hönnun þess og útlit og í blaðinu eru margar áhugaverðar greinar sem fjalla einkum um nemendur skólans og hugðarefni þeirra. Daginn sem blaðinu var dreift mátti sjá nemendur gjörsamlega niðursokkna í lestur þess um allan skóla. Við óskum ritstjórninni til hamingu með blaðið en á efstu myndinni hér að neðan má einmitt sjá ritstjórnarmeðlimi taka fyrstu eintökin upp úr kössunum.




