Fréttir

LeonardoH2009-4

Evrópusamstarf um leiðir til að draga úr brottfalli

Á dögunum hittust kennarar frá skólum í sex Evrópulöndum í skólanum en þá fór fram fyrsti fundur hóps sem vinnur að verkefni á vegum Leonardo-áætlunarinnar. Verkefnið er til tveggja ára og er ætlunin að skoða leiðir til að minnka brottfall í framhaldsskólum.  Markmiðið er að taka saman yfirlit yfir kennsluaðferðir og námsefni sem hefur virkað vel til þess að draga úr brottfalli nemenda og einnig á að koma á tengslum milli skóla og stofnana sem eru að þróa aðferðir til að minnka brottfall.

Skólinn er aukaaðili að verkefninu; kennarar frá skólanum taka þátt í fundum á Íslandi og fá aðgang að öllum gögnum hópsins.  Kennarar frá skólunum sem taka þátt í verkefninu hittust fyrst á Íslandi og héldu fundi hér og í Tækniskólanum í Reykjavík.  Fundina sóttu þrír kennarar frá Íslandi og Tyrklandi og tveir kennarar frá Belgíu, Finnlandi, Frakklandi og Skotlandi.
 

LeonardoH2009-1

LeonardoH2009-2

LeonardoH2009-3



Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 



Stuðnings valmynd



þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica heimasiðugerðheimasiðugerð - nánari upplýsinga á heimasíðu eplica.