Fréttir

ListaferdH2009

Listnámsnemendur í borgarferð

Þriðjudaginn 3. nóvember fóru nemendur á listnámsbraut í heilmikla reisu og skoðuðu söfn í Kópavogi og Reykjavík. Þetta voru nemendur í áföngunum SJL 103, MYL 103, MYL 213 og LIM 103 og kennarar þeirra, Íris Jónsdóttir og Bragi Einarsson.  Hópurinn kíkti á sýningar í Gerðasafni í Kópavogi og Listasafni Reykjavíkur.  Ferðin tókst mjög vel í alla staði og voru nemendur og kennarar fróðari um Kúrrakka, veggspjöld frá Írlandi, þrykkmyndir, innpökkuð herbergi, gjörninga og Erró svo eitthvað sé nefnt.
Þriðjudaginn 10. munu svo nemendur heimsækja Listasafnið í Duushúsum og sjá sýninguna "Innistæða".

Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 



Stuðnings valmynd



þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica heimasiðugerðheimasiðugerð - nánari upplýsinga á heimasíðu eplica.