Fréttir
Skemmtanir á vegum nemendafélagsins
Nemendafélag Fjölbrautaskóla Suðurnesja (NFS) stendur reglulega fyrir uppákomum ýmiskonar, eins og dansleikjum og kaffihúsakvöldum. Við viljum vekja athygli forráðamanna á reglum skólans á þessum skemmtunum.
Fimmtudaginn 22. október nk. verður haldinn skóladansleikur í Officera klúbbnum sem staðsettur er á Vallarheiði. Fyrirkomulagið á dansleiknum verður þannig að húsið opnar kl. 22:00 og lokar kl. 23:30. Ef nemendur fara út af dansleiknum fá þeir ekki að koma aftur inn. Ölvun ógildir miðann, en því miður gerist það of oft að nemendur eru undir áhrifum áfengis þegar þeir mæta á dansleiki. Nemendur sem eru sýnilega ölvaðir eru teknir afsíðis og látnir blása í áfengismæli. Ef þeir reynast hafa verið að drekka, og eru yngri en 18 ára, þá er hringt í foreldra og þeir beðnir um að sækja viðkomandi nemenda. Lögráða nemendum er vísað út af ballinu. Nemendurnir þurfa síðan að koma í viðtal, ásamt foreldri séu þeir ólögráða, hjá forvarnarfulltrúa og fara í skemmtanabann á næstu uppákomu á vegum NFS.
Nokkuð er um að nemendur skipuleggi eftirlitslaus heimapartý fyrir dansleiki. Mikilvægt er að skólayfirvöld og foreldrar standi saman í því að sporna við drykkju ungmenna og eru foreldrar hvattir til að leyfa börnum sínum ekki að halda eftirlitslaus partý fyrir skólaböll. Þá er gott ef foreldrar hafa tök á að keyra börn sín á böllin og sækja aftur að þeim loknum.
Öll tóbaksnotkun er bönnuð á dansleikjum og því er tóbak tekið af nemendum við inngang.
Dansleikir standa ýmist til kl. 1 eða 2 eftir miðnætti. Hafi foreldrar ekki tækifæri til að sækja börn sín að þeim loknum geta þau tekið rútu sem stoppar við FS.
Nemendafélagið hefur staðið fyrir kaffihúsakvöldum á fimmtudögum. Standa þau frá kl. 22 og fram eftir nóttu og eru venjulega haldin á skemmtistað við Hafnargötuna. Þessar uppákomur eru eingöngu fyrir 18 ára og eldri og engin gæsla frá skólanum er á staðnum. Við biðjum foreldra því vinsamlegast að brýna það fyrir börnum sínum yngri en 18 ára að kaffihúsakvöldin eru ekki ætluð þeirra aldurshóp.
Hér á heimasíðunni má finna skólareglurnar og á heimasíðu NFS www.nfs.is eru upplýsingar um hvað næst er á dagskrá hjá þeim.

