Fréttir

Slovakar-02

Slóvakar í heimsókn

Fyrri hluta september voru átta nemendur frá Trvana í Slóvakíu gestir nemenda skólans en hópurinn dvaldist hér í þrjár vikur ásamt tveimur kennurum sínum. Í sumar fór jafnstór hópur héðan til Slóvakíu og dvaldist þar í þrjár vikur. Hóparnir hafa verið að vinna að gerð orðabókar sem ætlunin er að verði komin á netið í lok verkefnisins í september 2010. Í orðabókinni verður hefðbundið orðasafn, safn heita yfir hjálpargögn í hjúkrun/ummönnun þar sem mynd fylgir hverju atriði og safn líffæra-og lífeðlisfræði heita ásamt myndum. Orðabókin verður í upphafi á ensku, slóvakísku og ensku en möguleiki er á að bæta við allt að 10 tungumálum til viðbótar.

Slóvakísku nemendurnir gistu hjá íslensku félögum sínum og kynntust þannig lífinu hjá íslenskum fjölskyldum. Tíminn var vel nýttur til að kynna gestunum land og þjóð, menningararf okkar og siði. Hópurinn fór í skoðunarferðir um Suðurnesin og Suðurlandið þar sem helstu náttúruundur voru barin augum. Gestir okkar lýstu mikilli ánægju sinni með dvölina hér þrátt fyrir rysjótt veður á stundum.

Slovakar

Hópurinn frá Slóvakíu.
Jana, Daniela, Dominik, Monica, Jan.
Lucia, Danika, Jana, Veronika, Anna.

Slovakar-03

Í Reynisfjöru.

Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 



Stuðnings valmynd



þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica heimasiðugerðheimasiðugerð - nánari upplýsinga á heimasíðu eplica.