Fréttir
Kynningarfundur og stofnun foreldrafélags
Fimmtudaginn 10. september var haldinn kynningarfundur fyrir foreldra nemenda á sal skólans. Fundurinn var vel sóttur en gestir voru tæplega 200. Foreldrar nýnema voru sérstaklega boðaðir á fundinn og þeir fengu einnig tækifæri til að ræða við umsjónarkennara barna sinna. Þeir hlýddu á skólameistara og aðstoðarskólameistara kynna skólann og síðan var sýnt hvernig foreldrar geta nýtt aðgang sinn að skólakerfinu Innu til að fylgjast með námi barna sinna. Að sjálfsögðu var svo boðið upp á kaffi og meðlæti frá stúlkunum í mötuneytinu og brást það ekki frekar en fyrri daginn. Að lokinni kynningu á sal hittu umsjónarkennarar foreldra umsjónarnemenda sinna og kynntu þeim umsjónarkerfi skólans og þær reglur sem gilda um nám og ástundun.
Á fundinum var Foreldrafélag stofnað við skólann en í framhaldsskólalögum sem sett voru á síðasta ári er gert ráð fyrir að foreldraráð starfi við alla framhaldsskóla. Stefanía Valgeirsdóttir var kjörinn formaður félagsins en aðrir stjórnarmenn eru Hildur Ásmundsdóttir, María Magnúsdóttir, Ragnheiður Ragnarsdóttir, Skúli Jónsson og Steinþóra Eir Hjaltadóttir.
Við þökkum gestum okkar fyrir komuna og hvetjum þá og aðra foreldra til að hafa samband við umsjónarkennara og námsráðgjafa til að leita upplýsinga eða aðstoðar eftir þörfum. Nokkrar myndir frá foreldrafundinum eru komnar í myndasafnið.


