Fréttir

Busadagur2009-070

Busarnir vígðir

Föstudaginn 28. ágúst var komið að hinni hefðbundnu vígslu nýnema. Strax um morguninn þurftu busagreyin að leysa ýmsar þrautir og fylgja margvíslegum reglum sem eldri nemendur höfðu sett í tilefni dagsins. Þá voru nýnemarnir vel merktir svo ekki færi á milli mála hverjir þar væru á ferðinni. Busunum var síðan smalað saman á sal og lesið yfir hausamótunum á þeim. Síðan voru allir drifnir út á lóð þar sem nýnemarnir þurftu að ganga í gegnum þrautagöngu og smakka á lýsi og öðru góðgæti. Eldri nemar voru svo vinsamlegir að bjóða upp á vatnskar og brunaslöngu svo busarnir gætu nú örugglega kælt sig niður.  Eftir vígsluna var svo farið í leiki og boðið upp á pizzu og gos á línuna.  Ekki var annað sjá en að fólk skemmti sér vel og nýnemarnir hafa sjálfsagt verið fegnir að vera ekki lengur busar heldur komnir í tölu heldri nemenda.  Um kvöldið var svo hið hefðbundna busaball.

Við minnum á að veglegt myndasafn frá busadeginum er komið á vefinn.

Busadagur2009-008

Busadagur2009-060

Busadagur2009-085

Busadagur2009-090



Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 




Áskrift

Skráning á póstlista.

Vinsamlegast athugaðu að netfangið sé rétt slegið inn.


Stuðnings valmynd



þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica heimasiðugerðheimasiðugerð - nánari upplýsinga á heimasíðu eplica.