Fréttir

KarfaKvennalid

Stelpurnar okkar unnu körfuna

Í vetur hefur staðið yfir Íþróttavakning í framhaldsskólum. Það voru menntamálaráðuneytið, heilbrigðisráðuneytið, Lýðheilsustöð og félög framhaldsskólanema, SÍF og HÍF sem stóðu að átakinu. Þar hefur verið keppt í keppnisíþróttum en einnig hafa nemendur safnað stigum fyrir sinn skóla með því að fara í sund, taka þátt í skipulögðu skokki o.s.frv. Okkar stúlkur gerðu sér lítið fyrir og sigruðu í körfuknattleikskeppninni og héldu upp heiðri Suðurnesjanna sem miðstöð körfuboltans. Piltunum okkar gekk reyndar ekki eins vel en þeir afsökuðu sig með því að sterkustu leikmenn liðsins voru fjarverandi vegna úrslitakeppni Íslandsmótsins sem stóð yfir á sama tíma.

Á dögunum komu fulltrúar átaksins og afhentu stúlkunum verðlaun fyrir sigurinn.  Reyndar voru liðsmenn eitthvað uppteknir við próflestur og því mætti aðeins hluti liðsins til að taka við verðlaunum sínum.  Við óskum stúlkunum til hamingju með sigurinn.

Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 




Áskrift

Skráning á póstlista.

Vinsamlegast athugaðu að netfangið sé rétt slegið inn.


Stuðnings valmynd



þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica heimasiðugerðheimasiðugerð - nánari upplýsinga á heimasíðu eplica.